Grunnnámskeið vinnuvéla
Lyftarapróf - Gröfupróf - Kranapróf
Grunnnámskeið vinnuvéla er stundum kallað “Stóra námskeiðið”. Námskeiðið veitir bókleg réttindi á allar stærðir og gerðir vinnuvéla sem eru réttindaskyldar á Íslandi.
Íslensk réttindi eru viðurkennd víðast hvar í Evrópu.
Námskeiðið fer 99% fram í fjarnámi, aðeins lokaprófið er í kennslustofu hjá Vinnuverndarnámskeið ehf, á vinnustöðum eða í fjarnámsmiðstöð eftir samkomulagi.
Allir sem eru orðnir 16 ára geta tekið námskeiðið en til að fá fullgild vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.
Smellið hér til að skoða fyrsta kaflann á námskeiðinu
Þátttakendur geta byrjað á námskeiðinu þegar þeir vilja og lært þegar þeir vilja og hægt er að horfa á námsefnið eins oft og hver vill. Einnig er hægt að leysa verkefni eins oft og hver vill.
Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, ítarefni, verkefnum sem eru krossaspurningar og krossaprófum. Það þarf að leysa verkefnin og standast prófin til geta haldið áfram á námskeiðinu.
Að námskeiðinu loknu geta þátttakendur hafið verklegt nám á allar gerðir réttindaskyldra vinnuvéla undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur kennsluréttindi. Að verklegri þjálfun lokinni er óskað eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu. Vinnueftirlitið gefur út vinnuvélaskírteini. Öll verkleg þjálfun og próf fara fram á vinnustöðum.
Uppbygging námskeiðsins:
- Kynning, vinnuverndarlög, reglur og reglugerðir
- Vinnuverndarstarf og sálfélagslegt vinnuumhverfi – Próf úr köflum 1 og 2
- Hættuleg efni, inniloft og loftræsting, hávaði og lýsing
- Vélfræði, vökvafræði, rafgeymar og hleðsluklefar fyrir rafgeyma
- Eðlisfræði, uppstilling og stöðugleiki vinnuvéla, ásláttarbúnaður – Próf úr köflum 3 til 5
Hífivír, stjórnbúnaður krana, að hífa fólk með krana og merkjakerfi fyrir kranastjórn
Byggingakranar og hafnarkranar í skráningarflokki A
Hleðslukranar í skráningarflokkum B og P
Brúkranar í skráningarflokki C
Steypudælukranar og körfukranar í skráningarflokki D – Próf úr köflum 6 til 10
Öryggi við skurðgröft
Gröfur og traktorsgröfur í skráningarflokki E
Ámokstursskóflur í skráningarflokki F
Jarðýtur í skráningarflokki G
Vegheflar í skráningarflokki H
Jarðvinnuvélar undir 4 tonnum og dráttarvélar í skráningarflokki I – Próf úr köflum 11 til 16
Lyftarar og lyftitæki í skráningarflokkum J og K,
Að lyfta fólki með lyftara – Próf úr köflum 17 og 18
Valtar, útlaggningarvélar og fræsarar í skráningarflokkum L og M – Próf úr kafla 19
- Lokaorð
Skólinn hvetur nemendur til að halda sig að náminu og ljúka að jafnaði 1-4 köflum á dag.
Bóklegt lokapróf
Bókleg lokapróf eru haldin a.m.k. einu sinni í mánuði í Rafmennt Stórhöfða 27, 110 Reykjavík. Ekki er þörf á að skrá sig í prófin hjá Rafmennt.
Næstu próf verða haldin:
- 18.12.24 kl: 16:00
- 08.01.25 kl: 16:00
- 22.01.25 kl: 16:00
- 19.02.25 kl: 16:00
- 05.03.25 kl: 16:00
- 19.03.25 kl: 16:00
- 02.04.25 kl: 16:00
- 23.04.25 kl: 16:00
Hægt er að halda lokapróf fyrir hópa á vinnustöðum eftir samkomulagi.
Einnig er hægt að taka lokapróf í fjarnámsmiðstöðvum á landsbyggðinni eftir samkomulagi.
Verð og upplýsingar
Námskeiðið kostar 65.900 kr.
Veittur er afsláttur fyrir hópa.
Flest stéttarfélög, Virk, Rafmennt, Iðan, Vinnumálastofnun og Áttin veita styrki fyrir námskeiðinu eða hluta þess.
Grunnámskeið vinnuvéla er vinnuvélanámskeið sem veitir öll bókleg vinnuvélaréttindi:
Lyftaranámskeið – krananámskeið – byggingakrananámskeið, gröfunámskeið, valtaranámskeið
Lyftararéttindi – lyftarapróf
Skotbómulyftararéttindi – skotbómulyftarapróf
Kranaréttindi – kranapróf
Brúkranaréttindi – brúkranapróf
Körfukranaréttindi – spjót
Gröfuréttindi – gröfupróf
Dráttarvélaréttindi – dráttarvélapróf
Sláttuvélaréttindi – sláttuvélapróf
Jarðýturéttindi – ámokstursskófluréttindi – valtararéttindi – vegheflaréttindi
Grunnnámskeið vinnuvéla (stóra námskeiðið) veitir réttindi á alla 14 flokka vinnuvéla en Frumnámskeið Vinnueftirlitsins (litla námskeiðið) veitir réttindi á 6 flokka vinnuvéla.