Katlanámskeið um stór og millistór kerfi

Gufukatlar að þessari stærð eru meðal annars notaðir i fiskibræðslum, sælgætisgerðum, mjólkursamlögum og við ölgerð.

Námskeið er um stóra og millistóra gufukatla og kerfi sem þeir vinna með,  fjallað er um uppbyggingu kerfana og helstu öryggisatriði sem þarf að hafa í huga við rekstur þeirra.

Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við stór og milli stór gufukerfi og þá sem þjónusta kerfin og einnig þá sem þurfa að vinna með eða nærri slíkum búnaði. Uppbygging námskeiðsins:

  • Uppbygging kerfana og virkni
  • Rekstur og ráðlagt reglubundið eftirlit
  • Hvaða öryggisbúnaður þarf að vera til staðar
    • Prófanir og virkni hans
  • Vatn og meðhöndlun þess
    • Til að minnka úrfellingar
    • Uppsöfnun á óhreinindum í kerfinu
    • Aðferðir til að koma í veg fyrir tæringu

Farið er yfir mun á olíukötlum, rafskautakötlum og raftúbukötlum. Einnig rætt um gufulagnir og þær hættur sem þær geta skapað.

Fjallað er á regluverkið og hvaða úttektir gæti þurft að gera þegar kerfin eru:

  • Ný (CE merking)
  • Endurbyggð
  • Breytt

Aðeins er komið inn á vatnshitunarkerfi og farið er yfir muninn á slíkum kerfum. Að lokum verður fjallað um nokkur slys við stóra katla.

Verð og upplýsingar

Kennari: Ágúst Ágústsson iðnaðartæknitæknifræðingur.

Verð: 39.800 KR á mann en gefinn er afsláttur fyrir hópa.

Næsta námskeið verður haldið á Google Meet:

  • 2. september 2025 klukkan 12:00 til 16:00

Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum. Fjallað verður um nokkur slys við stór gufukerfi. Í lok námskeiðsins eru umræður með þátttakendum.

Flest stéttarfélög, Virk, Rafmennt, Iðan, Vinnumálastofnun og Áttin veita styrki fyrir námskeiðinu eða hluta þess.

Hægt er að halda námskeiðið fyrir einstök fyrirtæki eftir nánara samkomulagi og aðlaga það að viðkomandi starfsemi.