Verkstjóranámskeið

Hver er verkstjóri samkvæmt vinnuverndarlögunum? Hvaða ábyrgð og skyldur hvíla á verkstjóra varðandi vinnuverndar- og öryggismál? Vinnuverndarlögin og reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum er kynnt. Fjallað verður um mikilvægi þess að verkstjóri sé leiðandi í vinnuverndarstarfi og öryggismenningu vinnustaðarins. Farið verður yfir hvað skiptir mestu máli fyrir verkstjóra að vita s.s. framkvæmd vinnuverndarstarfs, áhættumat skráning og tilkynning vinnuslysa ásamt þremur stigum forvarna vegna vinnuslysa. Einnig verður komið inn á ábyrgð verkstjóra á vinnuumhverfinu almennt. Að lokum verður fjallað stuttlega um mikilvægi verkstjóra varðandi andlegt og félagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni.
 
In english

Who is a foreman/manager (verkstjóri)  according to the Occupational Health and Safety Act? What responsibilities and obligations do foreman have regarding occupational health and safety issues? The Occupational Health and Safety Act and the regulation on the organization and implementation of occupational health and safety work in the workplace are introduced. The importance of the foreman being a leader in occupational health and safety work and the safety culture of the workplace will be discussed. What is most important for a foreman to know will be reviewed, such as the implementation of occupational health and safety work, risk assessment, recording and reporting of occupational accidents, and the three levels of prevention of occupational accidents. The foreman’s responsibility for the work environment in general will also be discussed. Finally, the importance of the foreman regarding the mental and social work environment, bullying and harassment will be briefly discussed.

Verð og upplýsingar

Verð 23.400 KR á mann, gefinn er afsláttur fyrir hópa.

Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Google Meet.

Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum. 

Næstu námskeið verða haldin:

  • 6. október 2025
  • 7. október 2025 Á ENSKU
  • 8. desember 2025

Námskeiðin byrja klukkan 13:00 og standa til 15:00

Hægt er að halda námskeiðið fyrir einstök fyrirtæki eftir nánara samkomulagi og aðlaga það að viðkomandi starfsemi.

Flest stéttarfélög, Virk, Rafmennt, Iðan, Vinnumálastofnun og Áttin veita styrki fyrir námskeiðinu eða hluta þess.