Námskeið: Öryggi við vélar
Vélar eru notaður á flestum vinnustöðum. Vélar geta verið hættulegar og á Íslandi hafa orðið fjölmörg alvarleg slys við vélar í gegnum tíðina. Hægt er að koma í veg fyrir nánast öll slys við vélar með réttum búnaði og góðri umgengni.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við vélar og kringum þær.
Uppbygging námskeiðsins:
- Skilgreiningar á vélum og tækjum
- Reglur og reglugerðir um vélar og tæki
- Merkingar véla og CE-merking
- Öryggisbúnaður véla og öryggisfjarlægðir
- Áhættumat fyrir vinnu við vélar
- Slys við vélar
Verð og upplýsingar
Verð: 23.300 KR á mann en gefinn er afsláttur fyrir hópa.
Námskeiðið er haldið á Google Meet og hægt er að skrá sig á SKRÁNING hér fyrir neðan og velja námskeiðið í flettiglugganum.
- Næsta námskeið er 13. október 2025. kl. 13:00 til 15:00
Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum. Í lok námskeiðsins eru umræður með þátttakendum.
Flest stéttarfélög, Virk, Rafmennt, Iðan, Vinnumálastofnun og Áttin veita styrki fyrir námskeiðinu eða hluta þess.
Hægt er að halda námskeiðið fyrir einstök fyrirtæk