Úttektir á vinnuverndar- og öryggismálum
Vinnuverndarnámskeið ehf. tekur að sér úttektir á vinnuverndar- og öryggismálum fyrir fyrirtæki. Úttektir eru framkvæmdar í samráði við stjórnendur fyrirtækja, hvað á að skoða í úttektinni og hvenær. Úttektir geta farið fram einu sinni, mánaðarlega, árlega eða eftir frekara samkomulagi.
Lögð er áhersla á að skoða og fjalla um það sem vel er gert og líka það sem má gera betur. Í úttektum eru teknar myndir og notaðar í skýrslu um ástand vinnuverndar- og öryggismála hjá fyrirtækinu. Í skýrslunni eru settar fram tillögur að úrbótum á því sem má gera betur.
Dæmi um hvað er skoðað í úttekt á vinnuverndar- og öryggismálum:
- Hvernig er aðkoman að fyrirtækinu? Umgengni, ræsting og skipulag á bílaplani, aksturs- og gönguleiðir, merkingar, lýsing o.fl.
- Hvernig er farið inn í fyrirtækið, skráning, persónuhlífar gesta, fræðsla o.fl.?
- Umgengni og ræsting innan fyrirtækisins, notar starfsfólk persónuhlífar og öryggisbúnað?
- Ástand véla og tækja, eru öryggishlífar á sínum stað, eru handrið á sínum stað, eru neyðarstopp aðgengileg og í lagi? Annar öryggisbúnaður, ástand og notkun.
- Ástand og notkun vinnuvéla, vinnuvélaréttindi, eru vinnuvélar í góðu ástandi, með gilda skoðun og hreinar?
- Notkun varúðarmerktra efna, öryggisblöð, persónuhlífar, geymsla, neyðarsturta og augnskol, frágangur o.fl.
- Stigar, tröppur og pallar, ástand og notkun, eru þessi tæki merkt og í lagi?
- Eru notuð léttitæki, tillistólar, hjólaborð, lyftur o.fl.?
- Hvernig er loftræsting, lýsing, hávaði o.fl.?
- Slökkvibúnaður, neyðarútgangar og neyðarbúnaður, ástand og aðgengi. Er búið að setja eitthvað dót/drasl fyrir þennan búnað, virka neyðarútgangar?
- Kaffistofur og salerni, aðgengi og ástand.
Einnig er hægt að fara yfir vinnuverndarstarf fyrirtækisins og framkvæmd þess eftir frekara samkomulagi.
Nánari upplýsingar: vinnuverndarskolinn@gmail.com
