Læsa Merkja Prófa LMP

Upplýsingar

  • Námskeiðið fjallar um grundvallar atriði við LMP-ferlið, þar með talið 6 – skrefa aðferðina. Aðferðin veitir starfsfólki vernd gegn óvæntri ræsingu/orkulosun þegar unnið er við vélar og búnað

  • Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa við vél- og rafbúnað eða í umhverfi þar sem hætta er á óvæntri ræsingu eða orkulosun við þjónustu og viðhald
  • Fjallað verður um það sem lög, reglur og staðlar segja um LMP og ýmislegt annað sem skiptir máli að vita og kunna varðandi LMP.

Kennari / Teacher: Leifur Gústafsson

Hann hefur víðtæka reynslu og þekkingu á efninu. Hefur m.a. nýlega endurnýjað námskeið sem Lockout Tagout specialist frá NASP, sjá skírteini hér fyrir neðan.

Verð og upplýsingar

Verð 22.700 kr. á mann, gefinn er afsláttur fyrir hópa.

Námskeiðið er í boði nokkrum sinnum á önn, en einnig er hægt að halda það fyrir hópa í stofu eða á Google Meet eftir nánara samkomulagi. 

Næstu námskeið á Google Meet verða:

  • 14.10.2026 klukkan 13:00 til 15:00 Á ENSKU
  • 17.12.2026 klukkan 13:00 til 15:00