Vinnuvernd 101
Námskeiðið fjallar um grundvallaratriði í starfsumhverfi og vinnuskipulagi til að stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks. Námskeiðið er hugsað fyrir allt starfsfólk vinnustaða til að allir hafi breiða almenna þekkingu á vinnuvernd og öryggismálum. Fjallað verður um það sem lög og reglugerðir segja að allir vinnustaðir verði að uppfylla.
Á námskeiðinu verður farið yfir það sem skiptir mestu máli á stuttan og snarpan máta, m.a. verður fjallað um:
- Vinnuverndarstarf sem þarf að fara fram á öllum vinnustöðum
- Skipan og hlutverk öryggisnefnda, öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
- Skipulag og kröfur varðandi áhættumat starfa
- Hvaða vinnuslys á að skrá og tilkynna
- Helstu forvarnir vegna vinnuslysa
- Sálfélagslegt áhættumat, stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni
- Líkamlegt álag, hávaða, loftræstingu og meðferð hættulegra efna
Þátttakendur fá send námsgögn í tölvupósti, linka á bæklinga sem þeir lesa og 7 fyrirlestra, samtals um 40 mín. sem þeir horfa á. Að lokum taka þátttakendur stutt krossapróf úr efninu.
Verð og upplýsingar
Verð: 19.700 kr á mann, gefinn er afsláttur fyrir hópa.
Hvar: Námskeiðið er alltaf aðgengilegt í fullu fjarnámi.
Hvernig: Námskeiðið fer fram í fullu fjarnámi (Online). Það er hægt að byrja og læra þegar fólk vill.
Niðurgreiðsla: Flest stéttarfélög, Virk, Rafmennt, Iðan, Vinnumálastofnun og Áttin veita styrki fyrir námskeiðinu eða hluta þess.
Ávinningur Þátttakendur fá breiða, almenna þekkingu á vinnuvernd og öryggismálum á stuttum tíma.